störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa saknað þingmanna Framsóknarflokksins í umræðunni um hækkun á virðisaukaskatti á matvæli. Kallað hefur verið eftir skoðunum okkar. Þannig var helst á hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að skilja í gær að þingmenn Framsóknarflokksins þyrðu ekki í umræðuna og væru að kikna í þessu máli.
Slíkt er fjarri sanni. Undirritaður hefur talað mjög skýrt í umræddu máli. Afstaða mín hefur legið fyrir í langan tíma. Ég hef ekki bara tjáð hana í tveggja manna tali heldur opinberlega oftar en einu sinni, oftar en tvisvar og oftar en þrisvar.
Og ég hef ekki skipt um skoðun þar sem ég hef ekki enn séð þau rök sem fá mig til að gera það. Þau gætu hins vegar komið fram og þá mun ég skipta um skoðun ef slík rök koma fram.
Ég er hins vegar sammála þeirri hugmyndafræði að einfalda skattkerfið og fella niður vörugjöld. Það er skref í rétta átt. Ég hefði hins vegar talið að við ættum að fækka undanþágum enn meira en gert er. Þar liggja umtalsverðir fjármunir fyrir ríkið. Það eru engin rök fyrir því að laxveiði sé undanskilin virðisaukaskatti, það eru engin rök fyrir því að Bláa lónið, sem er vel rekið fyrirtæki með mikinn hagnað, borgi ekki virðisaukaskatt af stórum hluta starfsemi sinnar.
Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur gert fyrirvara í þessu máli. Það er ekkert óeðlilegt við það. Við viljum sjá nánari útreikninga þar sem meðal annars er litið til áhrifa mótvægisaðgerða þannig að við getum treyst því að fyrirhugaðar breytingar af virðisaukaskatti skili sér til neytenda. Þetta er ábyrg og góð afstaða til þessa máls. Ekkert slíkt prinsipp var fyrir hendi hjá síðustu ríkisstjórn sem hækkaði álögur á allt og alla. Þetta er sama fólkið og kemur hér upp og hefur hvað hæst um auknar álögur, sömu dramadrottningarnar og víluðu ekki fyrir sér að hækka álögur á þá sem lægst höfðu launin, (VigH: Rétt.) að ekki sé talað um skerðingu á kjörum aldraðra og öryrkja. (VigH: Rétt.) (Gripið fram í.) Þetta er sama fólkið og kennir sig við vinstri stefnu, sama fólkið og boðaði skjaldborg um heimilin, (Gripið fram í.) (VigH: Rétt.) sama fólkið og á Íslandsmet í skattahækkunum.