144. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[16:28]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram. Það hefur verið farið um víðan völl, margt ágætt sagt, annað minna skynsamlegt. Í fyrsta lagi vil ég nefna að þeir sem kosið hafa að draga fram ókosti þeirra breytinga sem hér eru undir og viljað einblína á ókosti þessara breytinga undanskilja af ásettu ráði í áherslum sínum alla kosti breytinganna. Megináhersla mín í þessari umræðu hefur verið að kalla eftir málefnalegri umræðu um heildaráhrif frumvarpsins. Það kemur út af fyrir sig ekki á óvart þegar boðaðar eru skattalækkanir eins og fylgja þessu frumvarpi hverjir berjast gegn þessari skattalækkun. Með frumvarpinu lækka tekjur ríkisins um um það bil 3 milljarða og síðan er bætt í bótaflokka um annan milljarð. Þeir sem berjast gegn skattalækkuninni hefðu hins vegar betur komið fram og sagt það hreint út í stað þess að reyna að halda því á lofti í umræðunni að um væri að ræða skattahækkun. Það er einfaldlega rangt. Þeir sem hér eiga í hlut eru einmitt hinir sömu og börðust gegn skattalækkunum fyrir ári. Þetta eru sömu flokkarnir og börðust gegn lækkun tekjuskattsins, voru ekki stuðningsmenn þess að lækka tryggingagjald, hafa talað fyrir framlengingu auðlegðarskattsins og studdu yfir höfuð engar þeirra skattbreytinga sem kynntar voru við framlagningu fjárlagafrumvarpsins fyrir ári. Við það bætist að þessir flokkar hafa barist gegn öðrum stórum hagsmunamálum fyrir heimilin í landinu eins og aðgerðum vegna verðtryggðra lána skuldsettra heimila.

Nú liggur fyrir að á næsta ári munu ráðstöfunartekjur heimilanna vaxa um 5 milljarða vegna þeirra aðgerða. Það hefur auðvitað verið undanskilið í umræðunni hér í dag og undanfarna daga þegar rætt er um áhrif af áherslum ríkisstjórnarinnar fyrir heimilin að sú aðgerð ein og sér kemur til með að auka ráðstöfunartekjur heimilanna verulega á næsta ári. Því til viðbótar koma áhrifin af þessu máli.

Þeir sem hafa staðið hér í ræðustól og mótmælt breytingum á vörugjöldum sem ákveðinni mótvægisaðgerð í þessari heildarkerfisbreytingu eru þeir hinir sömu og fóru fyrir breytingum á vörugjaldakerfinu á síðasta kjörtímabili. Þeim tókst með ákveðinni snilld að koma sykurskattinum ekki bara á sykurlausar vörur — heldur meira að segja á dekk. Síðan gripu menn reyndar til ráðstafana til að vinda ofan af þeirri þvælu.

Það hefur líka verið með ólíkindum að hlusta á þá sem kenna sig við jafnaðarmennsku halda því fram að þeir flokkar hafi frá upphafi talað fyrir því að hafa 7% neðra þrep og þrepaskipt virðisaukaskattskerfi. Hver er upphafsmaðurinn að virðisaukaskattskerfinu? Hver barðist fyrir einu flötu þrepi í virðisaukaskattskerfinu? Hver var það? (Gripið fram í.) Kann að vera að það hafi verið jafnaðarmaðurinn Jón Baldvin Hannibalsson? Kann að vera að það hafi verið jafnaðarmenn sem börðust gegn breytingum á virðisaukaskattskerfinu sem gerðar hafa verið í millitíðinni? Ég hygg að svo sé, enda hefur hinn ágæti fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins Sighvatur Björgvinsson skrifað um það að undanförnu og sagt að sér kæmi verulega á óvart ef fyrrverandi félagar hans, sem hafa heiðrað hann fyrir að vera einn helsti stofnandi og hvatamaður að stofnun Samfylkingarinnar, ef hans gömlu og góðu félagar færu að berjast gegn skynsamlegum breytingum á virðisaukaskattskerfinu. Það hefur samt sem áður gerst hér í dag, síðast hjá einum fyrrverandi formanni flokksins.

Ég er reyndar ekki hingað kominn til að tala fyrir einu þrepi í virðisaukaskattinum. Mér fannst einfaldlega rétt að benda á að jafnaðarmenn hafa fremstir farið fyrir umræðunni um eitt þrep í virðisaukaskatti. Það er ágætt að halda því til haga í stóra samhenginu.

Því er haldið fram að horfa þurfi á tekjutíundirnar. Samt sem áður hefur engum tekist að koma hingað undir þessari umræðu og sýna fram á að lægsta tekjutíundin komi verr frá þessu máli en aðrar. Það er sagt að lægsta tekjutíundin verji hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum sínum til matarinnkaupa en efri tekjutíundirnar.

Það er hægt að skoða kjör tekjutíundanna frá mismunandi sjónarhornum. Eitt er að skoða hlutfall af ráðstöfunartekjum og annað að skoða hlutfall af heildarútgjöldum. Þegar skoðuð eru hlutföll af heildarútgjöldum er óskaplega lítill munur á milli tekjutíundanna sem segir okkur að mjög lágt efra þrep er miklu meiri ívilnun til hinna tekjuhærri en þeirra tekjulægri. Þess vegna hef ég svo oft sagt í þessari umræðu: Virðisaukaskattskerfið er ekki gott kerfi til tekjujöfnunar.

Skoðum þetta líka út frá hlutfalli af ráðstöfunartekjum. Hér er sagt að bent hafi verið á að neðsta tekjutíundin verji 16–20% í matarinnkaup. En það er í raun og veru alveg sama hvað við skoðum, matarinnkaup eða aðra neyslu, sú tekjutíund ver hærra hlutfalli en hinar af ráðstöfunartekjum sínum vegna þess að hún notar allt sitt svigrúm til neyslu á meðan hærri tekjutíundirnar hafa meira borð fyrir báru. Það er staðreynd málsins. (Gripið fram í.) Þess vegna skiptir öllu máli að skoða ekki bara matarinnkaupin heldur líka hin 85–86% af neyslunni sem þá eru eftir. Þegar það er gert kemur einmitt í ljós að aðrar aðgerðir en hækkun neðra þrepsins nýtast hlutfallslega betur lægstu tekjutíundinni. Til dæmis nýtist afnám vörugjalda betur lægstu tekjutíundinni en hinum tekjutíundunum. Lækkun efra þrepsins, en í því eru rúm 40% alls þess sem er í vísitölu neysluverðs, gagnast betur þeim sem eru í lægstu tekjutíundinni alveg eins og með vörugjöldin.

Þegar við leggjum þetta saman sjáum við að með þeim breytingum sem hér er verið að boða nýtast ráðstafanirnar hlutfallslega best lægstu tekjutíundinni. Kaupmáttaraukningin verður meiri þar en hjá hinum tekjuhærri, enda er það alveg rökrétt ef virðisaukaskattskerfið er á annað borð ásamt með öðrum neyslukerfum ekki gott til tekjujöfnunar. Þannig hefur Viðskiptaráð bent á það að tekjulægsti fjórðungurinn, ef við skoðum hann, muni auka kaupmátt sinn um 0,1% meira en hinir. Menn horfa fram hjá þessu vegna þess að menn hafa engan áhuga á því að ræða málið málefnalega og af einhverri yfirvegun, því miður. Það hefur verið óskaplega dapurlegt að hlusta á röksemdafærsluna hér.

Því er haldið fram, meira að segja í þessari umræðu, að ríkisstjórnin vegi að tekjustofnum ríkisins. Ég hvet alla til þess að fletta upp á bls. 69 í fyrra hefti fjárlagafrumvarpsins og skoða tölurnar. Þær tekjuráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur gripið til hafa aukið tekjur ríkisins. Og hvernig höfum við notað það viðbótarsvigrúm sem þannig hefur skapast? Við erum að nota það til þess í fyrsta lagi að fara í viðamiklar aðgerðir til að taka á skuldavanda heimilanna. Eins og ég hef áður sagt mun það eitt og sér auka ráðstöfunartekjur heimilanna um 5 milljarða. Og í öðru lagi höfum við hafið afnám á ýmsum sköttum og gjöldum sem lögð hafa verið á heimili og atvinnustarfsemi á undanförnum árum, t.d. breytingar á tekjuskattinum og nú afnám vörugjaldanna. Fleira gæti ég tínt til.

Þessar ráðstafanir samanlagt hafa fært um það bil 40 milljarða frá ríkinu til heimilanna. Þetta er ásamt öðru sem hefur gerst í stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar. Ég ætla ekki að halda því fram að við höfum ráðið því öllu til lykta. Til dæmis hafa ábyrgir kjarasamningar skipt miklu máli. Þetta allt saman hefur verið grundvöllur þess kaupmáttarvaxtar sem hefur orðið á þessu ári og því síðasta. Og það horfir til þess að áfram muni kaupmáttur ráðstöfunartekna vaxa.

Í þeim hlutföllum sem hér eru að öðru leyti nefnd ætla ég að taka eitt lítið dæmi. Það er spurt: Hvað með lágtekjufólk, hvað með þann sem hefur um 200 þús. kr. í mánaðartekjur? Ég tek fram að einungis um 4% allra launþega greiddu skatt í lægsta skattþrepi áður en við breyttum viðmiðunarmörkunum í fyrra, þ.e. einungis um 4% allra þeirra sem greiddu skatt voru með tekjur undir um 240 þús. kr. Horfum samt á málið út frá þeim sem eru með 200 þús. kr. á mánuði og gefum okkur að það sé rétt að 20% af ráðstöfunartekjunum fari í matarinnkaup. Það eru þá 40 þús. kr. á mánuði. Sannarlega ekki há fjárhæð en þetta er ekki dæmi sem ég bjó til, þetta er dæmi sem andstæðingar þessa máls hafa nefnt hér í umræðunni. Menn hafa verið að reikna út áhrif frumvarpsins á matarverð. Fjármálaráðuneytið hefur gert sína útreikninga, við áætlum að matarverð geti hækkað um 2,5%, annað lækkar meira, nettóáhrifin eru kaupmáttaraukning, en við segjum varðandi matinn kannski 2,5%. Viðskiptaráð segir 1,6%, Rannsóknasetur verslunarinnar segir innan við 2,5%, 2,4%.

Við skulum nota 2,5%. Það eru þá 1 þús. kr. á mánuði sem maturinn hækkar fyrir þá sem eru með 40 þús. kr. í matarkostnað á mánuði.

Sá sem er með 200 þús. kr. og á tvö börn fær 5 þús. kr. hækkun á barnabótum vegna þeirra aðgerða sem við erum að kynna. Það er fimm sinnum hækkunin á matnum í barnabótum. Annað kemur líka til. Eldsneyti lækkar, lyf lækka, föt lækka, húsbúnaður lækkar, húsgögn lækka o.s.frv., allt sem er í efra þrepinu. Raftæki lækka, heimilistæki lækka í verði og svo mætti áfram telja. Það er forsenda þess að kaupmáttur vex.

Þegar menn skoða málið út frá þeim staðreyndum sem er að finna í þessu máli ætti að vera auðvelt að leiða það fram að það er ekki tilviljun að útreikningar benda til þess að óháð tekjuhópum séu ráðstöfunartekjur að vaxa og ég hef ekki einu sinni enn nefnt að verðlag mun lækka. Hækkun sykurskattsins á síðasta kjörtímabili lagði ekki bara 3 milljarða á heimilin heldur hækkaði líka verðlag um 0,1%. Því fylgdu hækkanir á verðtryggðum skuldum heimilanna upp á rúmlega 1 milljarð.

Voru mótvægisaðgerðir þá kynntar til sögunnar? Menn hafa sagt hér að það sé verið að setja einhvers konar met í skattlagningu á nauðsynjavörur og neyslu. Má ég rifja upp fjárlagafrumvarp ársins 2010?

Hér erum við með frumvarp þar sem ríkið verður af 3 milljörðum í tekjur. Þá vorum við með frumvarp þar sem ríkið tók til sín rúma 60 milljarða í nýrri skattlagningu, í nýjum sköttum og í hærri sköttum. Þar varð um það bil 25 milljarða hækkun á neyslusköttum og um það bil 40 milljarða hækkun á öðrum sköttum. Mest af þessu var lagt á heimilin. Mér sýnast reiknimeistarar Samfylkingarinnar halda því fram að 10 milljarðar þýði 100 þús. kr. á hvert heimili. Samkvæmt þeirra eigin reikniformúlu lagði þá vinstri stjórnin 600 þús. kr. á hvert heimili fyrir árið 2010. Þeir sem báru ábyrgð á þeim skattahækkunum hafa lagst gegn hverri einustu skattalækkun sem við höfum kynnt til sögunnar fram til þessa. Þeir hafa lagst gegn því að að vinna að vaxandi kaupmætti, þeir hafa lagst gegn skuldalækkunaráformunum og þess vegna kemur ekki á óvart í þessu máli (Forseti hringir.) að þeir leggist gegn frekari kaupmáttaraukningu með skattalækkun. Þeir eru greinilega á móti því að vinna að bættum hag heimilanna. (Gripið fram í: Hvers konar málflutningur er þetta?) [Kliður í þingsal.]