virðisaukaskattur o.fl.
Herra forseti. Kjósendur eiga nú kannski eftir að láta sitt álit í ljós oftar í Íslandssögunni en 2013. Ef til vill ætti hæstv. fjármálaráðherra að hafa það í huga.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra flutti hér hneykslanlega ræðu áðan sem er að mínu mati ekki við hæfi ef ráðherra ætlar sér að ljúka langri og tiltölulega málefnalegri umræðu sem er búin að standa í tvo daga um frumvarp. Hann gerir það ekki með því að nota nánast allan ræðutíma sinn í skítkast og ausa úr skálum reiði sinnar yfir stjórnarandstöðuna, að þeim sem aðallega hafa borið uppi umræðuna. Nú kann vel að vera að hæstv. fjármálaráðherra sé svona úfinn innra með sér en það gengur ekki að taka út reiði sína í garð Framsóknarflokksins á stjórnarandstöðunni. Getur verið að fjármálaráðherra sé svolítið pirraður þessa dagana vegna þess að samstarfsflokkurinn hefur ekki alveg spilað með? Kyngir ekki alveg, kokgleypir ekki skattstefnu Sjálfstæðisflokksins sem kemur hér fram í sinni tærustu og ómenguðustu mynd.
Það er alltaf rangt að gera mönnum upp skoðanir og fara rangt með eins og hæstv. fjármálaráðherra gerði t.d. í tveim setningum, báðum hneykslanlegum að mínu mati. Hann sagði annars vegar að stjórnarandstaðan væri einfaldlega á móti því að bæta kjör heimilanna, þeir sem hefðu andæft þessu frumvarpi, við værum bara almennt á móti því að bæta kjör heimila í landinu, lífskjör í landinu. Þetta sagði hæstv. fjármálaráðherra. Þetta er auðvitað hneykslanlegt. Okkur getur greint á um leiðir. Okkur getur greint á um það hvort tiltekin ráðstöfun, tiltekið frumvarp, sé til góðs eða ills í þessum efnum, en að ætla hvert öðru þær hvatir að við séum í stjórnmálum af því að við viljum láta illt af okkur leiða fyrir fólkið í landinu er nú frekar langt gengið, verð ég að segja, herra forseti.
Síðan datt hæstv. ráðherra í Heimdallarstílinn og sagði að vinstri menn væru alltaf á móti því að lækka skatta. Alltaf. Og það hefði komið í ljós í fyrra, við hefðum verið á móti öllum breytingunum í fyrra, sem er rangt. Það er bara ósköp einfaldlega þannig. Hann nefndi að við hefðum verið á móti lækkun tryggingagjaldsins. Ekki man ég það nú. Ég man hitt að ég benti á að lækkun tryggingagjaldsins væri ekki neitt neitt. Hver var hún í fyrra? 0,1 prósentustig á sama tíma og ríkið hirti yfir til sín frá Atvinnuleysistryggingasjóði, frá Fæðingarorlofssjóði og frá Ábyrgðasjóði launa upp undir 10 milljarða. En atvinnuleysistryggingagjaldið var ekki lækkað í takt við lækkandi atvinnuleysi. Það gagnrýndum við. Það er ekki að vera á móti lækkun, þvert á móti.
Nefndur var tekjuskatturinn. Við gagnrýndum fyrst og fremst að tekjuskatturinn var ekki lækkaður á tekjulægsta fólkið. Lágtekjuþrepið sat eftir. Það þýddi ekki þar með að við gætum ekki hugsað okkur lækkun á tekjuskatti ef hún væri rétt útfærð. Þannig gæti ég haldið áfram.
Hitt er rétt að við töldum ekki ástæðu til þess að stórlækka tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi eins og afkoma sjávarútvegsins er að leiða í ljós núna að var ekki ástæða til, alla vega ekki að ganga jafnt langt og ríkisstjórnin gerði. Sömuleiðis að fella niður á einu bretti auðlegðarskattinn. Við lögðum til að hann yrði lagfærður, honum yrði breytt, mætt yrði þeirri gagnrýni að tekjulágt fólk með verðmætt húsnæði sem myndaði að uppistöðu til stofninn fyrir auðlegðarskattinn fengi frádrátt þannig að það væri minni líkur á því, minni hætta á því að menn lentu í því að greiða skattinn í stórum stíl án þess að hafa tekjur af eignum sínum. Það er annað sjónarmið en hæstv. fjármálaráðherra gerir okkur hér upp.
Ég held að hæstv. fjármálaráðherra bæti ekki stöðu sína með þessu, hvort sem það er pirringur út í samstarfsflokkinn eða kannski óánægja með það hvernig verkalýðshreyfingin bregst við sendingum hans sem veldur því að hann er frekar geðstirður og úfinn hér í umræðum í dag sem hann á nú alla jafnan ekki vanda til. Því oft og iðulega er hægt að eiga málefnaleg og yfirveguð orðaskipti við hæstv. fjármálaráðherra.
Alþýðusambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir ósköp einfaldlega að fjárlagafrumvarpið og skattafrumvörpin séu aðför að launafólki. Já, það getur vel verið að hæstv. fjármálaráðherra líki það ekki vel, en það eru greinilega fleiri en við sem hafa ýmislegt við þennan málatilbúnað að athuga.
Ég held að hæstv. fjármálaráðherra ætti að eiga orðaskipti við okkur á öðrum nótum en þessum, sérstaklega ef hann vill greiða götu sinna mála og vinna frekar með þinginu en á móti því nema það sé orðið að markmiði (Forseti hringir.) hjá honum í sjálfu sér að hafa hér allt vitlaust. Síðan það hvernig hæstv. fjármálaráðherra fjallar endalaust um skatta og ber saman aðgerðir í svartnætti hrunsins 2009 (Forseti hringir.) við það sem hann er að gera í dag segir sína sögu um veruleikafirringu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra.