virðisaukaskattur o.fl.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra fer enn í samanburð við skattaaðgerðir sem voru lögfestar á árinu 2009 til þess að stemma stigu við geigvænlegum hallarekstri ríkissjóðs sem ella hefði orðið og varð auðvitað á árinu 2010. Þarf að rifja þetta upp fyrir hæstv. fjármálaráðherra? Hallinn á ríkissjóði 2009 varð 140 milljarðar kr. á þágildandi verðlagi, eftir að búið var að grípa til upp undir 25 milljarða aðgerða á miðju ári 2009, upp undir 50 milljarða aðgerða á ársgrundvelli því þær tóku til seinni helmings ársins. Reyndar var þessi útkoma, 140 milljarðar, ívið betri en menn höfðu óttast, m.a. vegna þess að inn komu hagkvæm einskiptisviðskipti. Lengi vel var talið að hallinn stefndi hátt í 200 milljarða. Hann hefði farið í 170–180 milljarða ef ekki hefðu verið þessar aðgerðir strax á miðju ári 2009 sem menn af framsýni réðust strax í, sem betur fer.
Ég geri ráð fyrir því, þrátt fyrir það hvernig hæstv. fjármálaráðherra talar, að hann sé sæmilega að sér í reikningi. Hann er væntanlega fljótur að reikna það út hversu hratt skuldir ríkisins hefðu orðið óviðráðanlegar ef þessi halli hefði fengið að standa í mörg ár. Eða þykir honum ekki nóg um skuldasöfnunina sem þó varð? Og er hæstv. fjármálaráðherra ekki sammála því að það hafi verið gríðarlega mikilvægt, um leið og það var auðvitað alveg óhemjulega erfitt átak, að ná þessum stóru tölum svona hratt niður að ríkissjóður var kominn nokkurn veginn í jöfnuð árið 2013 og skuldirnar hættar að aukast?
Sagan mun svo að lokum dæma þetta, þar á meðal þá staðreynd sem kann líka að vera einn þáttur í viðkvæmni hæstv. ráðherra að hann leggur hér fram fjárlagafrumvarp og ríkisfjármálaáætlun sem sýnir (Forseti hringir.) engan bata í afkomu ríkisins þrjú ár í röð. Ríkissjóður í járnum þrjú ár í röð. Það eru engin stór (Forseti hringir.) skref sambærileg við síðasta kjörtímabil þar sem er verið að ná fram bata í ríkisfjármálunum. Það ætti hæstv. fjármálaráðherra að horfast í augu við, (Forseti hringir.) inn á milli þess sem hann dásamar skattalækkanirnar hjá sér.