virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Það er rétt að útskýra þetta aftur fyrir hæstv. fjármálaráðherra, skattatillögur Samfylkingarinnar frá því í desember í fyrra. Þær fólu í sér að í stað þess að þunginn væri lagður á þá sem mest voru með milli handanna, svo að fólk með 800 þús. kr. og yfir fengi 4.800 kr. í skattalækkun en fólk en með 300 þúsund fengi 500 kr., þá lögðum við til að höfuðþunginn yrði þannig að mestur ábati kæmi út hjá fólkinu á bilinu 250–600 þús. Kennari var þá (Gripið fram í.)með 320 þúsund (Gripið fram í.)á mánuði, og er núna væntanlega með nýjum kjarasamningum að lyftast eitthvað, en markmið okkar var að fólk á meðaltekjum kæmi betur út. Það mundi svo þýða að ávinningurinn mundi enda í 2.700 kr. fyrir þá sem væru efstir, ef ég man rétt, en fólk færi strax upp. Það er nú gaman að fá að tala um þessar tölur svona löngu seinna og gott að skattatillögur Samfylkingarinnar frá því í desember í fyrra séu viðvarandi umræðuefni hér í þingsölum, enda voru þær skynsamlegar, að fólk nyti til fulls breytingarinnar og skattalækkunarinnar þegar það væri komið í 330 þús. kr. Í 330 þús. kr. fengi fólk 2.700 kallinn og nyti hans alveg upp úr, en að fólkið með 800 þús. kr. fengi líka skattalækkun, þetta var ekki eins ójafnt skipt. Það er hugmynd Samfylkingarinnar í skattamálum, að tryggja að það sé ekki ójafnt skipt. Það var ekki skynsamlegt að eyða 5 milljörðum til þess að lækka skatta með jafn ójöfnum hætti og ríkisstjórnin lagði upp með, enda var hún rekin til baka með það af aðilum vinnumarkaðarins (Forseti hringir.) og tillögunum breytt á endanum í ætt við það sem Samfylkingin hafði lagt til.