ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um nokkur atriði tengd þessu frumvarpi. Í fyrsta lagi kemur fram í frumvarpinu, og hæstv. ráðherra fór líka yfir það, að framlengja á bráðabirgðaákvæði sem snýr að Framkvæmdasjóði aldraðra, þannig að áfram sé hægt að nota fjármuni úr honum í rekstur en ekki í stofnkostnað eins og honum er ætlað. Verið er að taka ákvörðun um að halda þessu áfram, en það var gert til þess að brúa ákveðið bil og mæta erfiðu ástandi. Það væri gott fyrir okkur hér að vita hver staðan er í sjóðnum núna og líka hversu mikið eigi að nota, vegna þess að það kemur ekki fram í frumvarpinu að menn hafi sett sér einhver mörk í þeim efnum, þ.e. að menn hafi dregið línu einhvers staðar um hversu mikið megi nota. Þá vil ég spyrja: Hversu mikið verður eftir til raunverulegra framkvæmda, eins og sjóðnum er ætlað að standa undir? Nú sjáum við að biðlistar lengjast og því mikilvægt að við séum með þessar upplýsingar í höndunum þegar ákvarðanir eru teknar eða afstaða er tekin til málsins.
Mig langar líka að spyrja um greiðsluþátttökukerfi lyfja. Verið að taka S-lyfin þar inn og sömuleiðis er í fjárlagafrumvarpinu boðuð aukin þátttaka þeirra sem nota lyf hér á landi. Mig langar að spyrja hvort hæstv. ráðherra sé með upplýsingar fyrir okkur um það hvaða áhrif þetta muni hafa á þá sem þurfa á lyfjum að halda hér á landi, hvort hann sé með einhverjar sviðsmyndir sem hann geti kynnt fyrir okkur um áhrif þessarar auknu þátttöku lyfjakaupenda í kostnaði lyfja.