144. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2014.

gagnrýni forustu ASÍ á fjárlagafrumvarpið.

[10:38]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er einfaldlega ekki rétt að með aðgerðum ríkisstjórnarinnar sé misskipting að aukast, þvert á móti. Mjög margar af þeim aðgerðum sem kynntar eru í fjárlagafrumvarpi næsta árs og kynntar voru í síðasta fjárlagafrumvarpi eru til þess fallnar að bæta sérstaklega stöðu þeirra sem eru með millitekjur eða lægri tekjur.

Ég nefndi hér verkamenn áðan, verkamenn í Dagsbrún og Eflingu. Eru það þessir hátekjuhópar sem hv. þingmaður er að tala um að ríkisstjórnin geri of mikið fyrir? Nei, varla. En það er engu að síður ljóst að verkamenn hafa bætt kjör sín langmest í stjórnartíð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks enda er með aðgerðum ríkisstjórnarinnar aukið á verðmætasköpun fyrir alla en hugað sérstaklega að stöðu þeirra sem eru með lægri og millitekjur.

Hvað varðar álögur á lyf þá ætti hv. þingmaður kannski að hafa velt þessu fyrir sér fyrr og þá kosið að hefja lækkun skatta á lyf eins og núverandi ríkisstjórn er að gera. Álögur á lyf aukast ekki hjá núverandi ríkisstjórn, þær eru að minnka.

Loks vil ég geta þess að (Forseti hringir.) að sjálfsögðu standa dyr ríkisstjórnarinnar alltaf opnar ef fulltrúar Alþýðusambandsins eða annarra aðila á vinnumarkaði vilja ræða við hana.