144. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2014.

vandi lyflækningasviðs LSH.

[10:50]
Horfa

Sigrún Gunnarsdóttir (Bf):

Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil hins vegar árétta að það er varla ráðrúm til að bíða, við þurfum að bregðast við þessum vanda. Við núverandi stöðu mun okkur til að mynda ekki takast að endurnýja starfsflota heilbrigðisstarfsfólks, eins og við vitum. Ungir hjúkrunarfræðingar og ungir læknar geta ekki hugsað sér að starfa við þessar aðstæður þannig að við verðum þarna að beita forgangsröðun og það er því miður ekki hægt að bíða og bíða og bíða.

Við þurfum að gera eitthvað mjög hratt núna.