ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015.
Frú forseti. Þetta gjald vegna rafeindatækjanna er í heildarfjárhæð örlítið brot af þeim vörugjöldum sem er verið að fella niður, sama hvort við horfum eingöngu á raftækin eða á vörugjöldin í heild sinni. Það sem ég sagði um þetta áðan var að ég gæti ekkert fullyrt um þetta án þess að taka það til frekari skoðunar og ætlaði ekki að gera það að óathuguðu máli. Mér sýnist ljóst af fjárhæðunum sem við erum að horfa á að þetta geti ekki haft nein áhrif á verðlag sem máli skipta.
Varðandi ferðamannastaðina er það rétt sem hv. þingmaður segir að enn er unnið að því að útfæra kerfi fyrir fjármögnun framkvæmda við ferðamannastaði sem einkum er ætlað að tryggja umhverfislega þætti og sjálfbærni á nýtingu þessara staða en ekkert síður öryggi og hreinlæti á þessum svæðum. Þar hafa verið skiptar skoðanir. Ég get ekkert fullyrt um það hvenær iðnaðarráðherra mun leggja fram frumvarp um þessi efni, en ég veit að þetta er eitt af forgangsmálum í ráðuneytinu. Við gerum ráð fyrir því að slíku kerfi með einhverjum hætti verði komið á á næsta ári og að það kerfi eða sú leið sem valin verður muni nýtast til þess að fjármagna mikilvægar framkvæmdir víða um landið svo að hægt sé að gæta að þessum mikilvægu þáttum, þ.e. náttúrunni þar sem mikill fjöldi ferðamanna kemur og skoðar, öryggi ferðamannanna sem eru á staðnum o.s.frv. Ég á engin færi á því að tala nánar um það hér í stuttu andsvari.