144. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2014.

nauðungarsala.

7. mál
[16:29]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Bara formsins vegna er rétt að ég segi þetta úr ræðustólnum. Það kemur fram fyrir nefndinni að til að þessi lagabreyting geti haft gildi fyrir þær sölur sem fóru fram þegar 2. september þarf að vera búið að klára frumvarpið, gera það að lögum og birta það fyrir 23. þessa mánaðar.