144. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2014.

flutningur Fiskistofu.

[15:25]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Það er reyndar ekki mín tilfinning að hér hafi verið vandað til verka en ég vona að svo sé. Það kemur þá bara í ljós ef það hefur verið vandað til verka og þá verður þetta farsælt verkefni, geri ég ráð fyrir. Ég hef áhyggjur af því að þekking tapist þegar þetta er gert svona snöggt og eins og hæstv. ráðherra segir var vitað að fáir mundu kannski vilja flytja með.

Ég velti líka fyrir mér fréttum af því að það eigi að borga fólki 3 milljónir fyrir að flytja til Akureyrar. Ég bý á Akureyri og tel það forréttindi að fá að búa þar. Það að borga fólki fyrir að flytja þangað finnst mér út í hött. Ef góð störf eru þar mönnum við þau. Það vantar ekkert upp á það. Kannski getur hæstv. ráðherra svarað fyrir þetta 3 millj. kr. útspil, hvort þetta séu einhverjar sögusagnir eða raunverulega rétt.