framtíðargjaldmiðill Íslands.
Virðulegi forseti. Nú held ég hér á krónu í hendi og á annarri hlið krónunnar er kannski undirstaða þess sem veldur því að við lifum í landinu, það er þorskur. Ég held að þetta tákn krónunnar sé miklu merkilegra en menn hafa nokkurn tíma hugað að, þ.e. þetta er vísbending um að það er sama hvaða gjaldmiðil við búum við, við þurfum öflugt atvinnulíf sem gerir íslensk verðmæti, geymslueyri, greiðslueyri og lánseyri eftirsóknarverðan. Ég deili ýmsum áhyggjum þarna en ég veit hins vegar ekki hvernig á að ná markmiðum nema þau atriði sem ég nefndi áðan um atvinnulífið séu tryggð. Atvinnulífið, stórfyrirtæki í þessu landi, sjávarútvegsfyrirtæki, flutningafyrirtæki, orkufyrirtæki, þau fara sínar leiðir í þessu en það kann að vera að hægt sé að ákveða þetta allt ofan frá með eina samræmda einingu.
Það er rétt að bent var á það að fyrir margt löngu, fyrir um einni öld, að ill mynt eyðir góðri, þ.e. ef hér er á boðstólum góð mynt þá verður hún keypt upp. Það er nákvæmlega það sem þingmaðurinn var að tala um, að miðað við krónu í höftum vilja menn sækja út úr þessu og erlendur gjaldeyrir verður eftirsóknarverður og honum verður eytt úr landi hérna.
Ég hef lokið máli mínu að sinni, virðulegi forseti.