144. löggjafarþing — 11. fundur,  23. sept. 2014.

hagnýting internetsins og réttindavernd netnotenda.

16. mál
[16:14]
Horfa

Flm. (Jón Þór Ólafsson) (P) (andsvar):

Herra forseti. Það kemur skýrt fram í flestum þessum skýrslum að ef ríki nýta sér ekki tækifærin strax verða þau eftir á í því að njóta gæðanna sem þeim fylgir. Ég fór hringinn varðandi gagnaversiðnaðinn. Maður hefur tekið eftir því að þar til dæmis verðum við að huga að því að eyða lagalegri óvissu, af því að þegar þeir sem ákveða velja hvar þeir ætla að setja upp „servera“ eða byggja gagnaver eða fara með þjónustuna sína í gagnaver þá fara þeir í gegnum tékklista. Við búum á eldfjallaeyju sem getur hægt á þessari þróun, þannig að hið opinbera þarf að gera allt sem hægt er til að styðja við í þessu máli og skapa ekki óþarfa hindranir ofan á alls konar náttúrulegar forsendur sem eru til staðar á Íslandi. Þá getum nýtt þessi tækifæri, því að eins og hv. þingmaður segir er það ofboðsleg oft þannig með internetið að þeir sem eru fyrstir halda forskotinu sínu.