144. löggjafarþing — 11. fundur,  23. sept. 2014.

hagnýting internetsins og réttindavernd netnotenda.

16. mál
[16:17]
Horfa

Flm. (Jón Þór Ólafsson) (P) (andsvar):

Herra forseti. Það eru ýmis lítil atriði sem auðvelt væri að laga á lægri stjórnsýslustigum, eins og ákvörðun um skattaleg atriði, sem til dæmis er búið að leysa á Írlandi þar sem þeir eru með gagnaveraiðnaðinn sinn. Það uppfyllir algjörlega þau skilyrði sem við þurfum að uppfylla varðandi alþjóðaskuldbindingar. En það er einhver tregða í kerfinu sem orsakar það að við missum af tækifærum.

Þetta er í raun aðeins spurning um það af hve miklum tækifærum við missum, því að við erum nú þegar að missa af tækifærum. Við erum að missa af tækifærum í uppbyggingu gagnaveraiðnaðarins sem gæti verið að ganga betur, sem þýðir að það eru fleiri viðskiptaaðilar, við værum ekki með öll eggin í sömu körfunni hvað varðar orkusölu. Þar af leiðandi byggist upp öflugur iðnaður og í kringum það alls konar þjónustuiðnaður í tæknigeiranum o.s.frv. Við erum því klárlega að missa af tækifærum nú þegar og spurningin hversu miklum tækifærum við ætlum að missa af.

Upplýsingatækni, internetið, þetta er bylting, þetta er tæknibylting og alveg eins og í iðnbyltingunni er það þannig að þeim, sem nýta sér tækifærin fyrst, mun vegna best. Það sem Bretland klikkaði á í iðnbyltingunni var að þeir voru ekki tilbúnir að gefa tæknimönnunum á þeim tíma „status“, þeir fengu ekki stöðu í samfélaginu, eins Peter Drucker, faðir nútímastjórnunar, bendir á. Þeir fóru til Þýskalands og þeir fóru til Bandaríkjanna þar sem þeir fengu stöðu og það varð ofboðslegur spekileki frá Bretlandi.

Þessi mistök hafa því verið gerð áður. Þeir sem nýta sér ekki tækifærin og skapa ekki kjörlendi (Forseti hringir.) eins og best verður á kosið til að nýta þessa nýju tækni missa tækifærið og það mun kosta þá verulega mikið.