144. löggjafarþing — 12. fundur,  24. sept. 2014.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Sigrún Gunnarsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég vil gera að umræðuefni mönnun heilbrigðisþjónustunnar. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki hefur blasað við um langt skeið. Sérstaklega er skortur á læknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum og ekki þarf að tíunda áhrif þess á gæði þjónustunnar.

Ástæður fyrir skorti heilbrigðisstarfsfólks eru margar og snúa meðal annars að aðbúnaði, áherslum í stjórnunar- og starfsumhverfi og þær snúast líka um menntunarmál og hversu margir hætta vegna aldurs á næstu árum. Fréttir af þessu ástandi eru nær daglegt brauð og ástandið veldur okkur áhyggjum og ekki síst almenningi.

Unnið hefur verið að gerð mannaflaspár fyrir heilbrigðisþjónustuna undanfarin ár en áreiðanlegar upplýsingar um stöðu þessara mála eru nauðsynlegar þar sem einhverjar upplýsingar, þó að fáar séu, eru betri en engar upplýsingar. Ég vil því ítreka mikilvægi þess að þingheimur og þeir sem láta sig heilbrigðisþjónustuna varða hafi aðgang að upplýsingum um stöðu mála á þessu sviði og um næstu skref til að tryggja nægan fjölda heilbrigðisstarfsfólks fyrir öryggi og heilsu þjóðarinnar.