144. löggjafarþing — 12. fundur,  24. sept. 2014.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

75. mál
[15:51]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Bjarnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér hefur verið það ljóst um allmörg ár að 1. október 2014, það er ekki hendingum háð hvenær sá dagur verður. Það komu ábendingar um að þessi dagur skipti máli í þessu máli, öðrum hvorum megin við helgina.

En ég ætla hins vegar ekki undir þessum dagskrárlið að ræða skipulag eða óreiðu frekar. Ég kýs að svara ekki spurningunni vegna þess að hún er ekki undir þessum dagskrárlið og ég reyni alltaf að halda mig við dagskrárliði hér á þingi. Ég hef lokið máli mínu, virðulegur forseti.