144. löggjafarþing — 13. fundur,  25. sept. 2014.

kennitöluflakk.

[12:02]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Fimmtudaginn 17. október í fyrra klippti ég út úr Morgunblaðinu grein sem ber yfirskriftina „Kennitöluflakk kostar tugi milljarða króna — ASÍ hefur lagt fram sextán tillögur til þess að sporna við kennitöluflakki.“ Síðan er þessi grein búin að vera inni á skrifstofu hjá mér, ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera við hana en síðan kemur þessi umræða hér og ég þakka málshefjanda fyrir hana. Það er þá þess vegna sem ég klippti hana út.

Mér finnst athyglisvert að hérna kemur fram að ASÍ hafi kynnt á blaðamannafundi 16 tillögur til að sporna við kennitöluflakki og ég velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra sé ekki örugglega með þessar tillögur líka á sínu borði. Þegar hún talaði um þá sem hún hefði verið í sambandi við var ASÍ ekki í þeirri upptalningu. Ég vænti þess þó að hún viti af þessum 16 tillögum.

Við höfum tekið dæmi af einstaka málum og hér er vitnað í Halldór Grönvold sem segir að „sá einstaklingur sem tengdist flestum gjaldþrotum félaga hér á landi á síðustu sjö árum hefði komið að einum 29 gjaldþrotum. Næstur í röðinni hefði komið að 22 gjaldþrotum og sá þriðji 20“.

Þeir fullyrða að þetta athæfi kosti íslenskt samfélag tugi milljarða króna á ári. Þessi kostnaður, sem er auðvitað það alvarlega, lendir einkum á sameiginlegum sjóðum þegar menn standa ekki skil á opinberum gjöldum.

Þetta er alvarlegt mál og ég hvet ráðherra til að hugsa þetta ekki of lengi. Við höfum vitað af þessu um langan tíma og fyrir ári voru sem sagt lagðar fram 16 tillögur. Hugsanlega væri hægt að ganga nú þegar í einhverjar af þeim.

Annars þakka ég bara fyrir umræðuna og vona að hæstv. ráðherra fari í málið.