kennitöluflakk.
Frú forseti. Þetta er líklega það málefni sem sjálfstæðir atvinnurekendur, einyrkjar flestir hverjir, hafa hvað oftast komið að máli við mig út af. Ég hef aldrei fengið jafn margar fyrirspurnir um að taka þetta upp. Ég hef alltaf sagt: Þetta er ekki forgangsmál hjá Pírötum, þið verðið að tala við þá sem eru í ríkisstjórn, sér í lagi Sjálfstæðisflokkinn sem vinnur á því að sérhæfa sig í því og vilja fá sérstöðu varðandi það að hugsa vel um atvinnulífið.
Þetta er mjög flókið mál en það sem þessir einyrkjar hafa jafnframt sagt mér er að sá aðili sem nær að taka þessu máli tökum og finna lausn og innleiða hana — þeir segja hvorki meira né minna en að sá aðili verði hetja fyrir það. Þetta skiptir þá það miklu máli og skiljanlega. Einyrkjar eru í sínum bisness með mjög lítið á milli handanna og eru að þjónusta einhverja aðila sem síðan hlaupa frá öllum skuldbindingum.
Vandamálið eins og það var skilgreint hér áðan, þ.e. að skuldirnar eru skildar eftir, eignirnar eru færðar annað, skuldir og gjöld, og sér í lagi er vandamál þegar þetta hefur gerst oft. Mér heyrðist hv. þingmaður sem hefur þessa umræðu og hv. þm. Helgi Hjörvar vera sammála um að einn þáttur lausnarinnar væri að færa ábyrgðina, þ.e. þessa takmörkuðu ábyrgð, yfir á einstaklingana á einhverjum forsendum. Það gæti verið á þeim forsendum að opinber gjöld færðust meira yfir á persónulega ábyrgð þannig að ekki væri hægt að hlaupa burtu frá þeim eða ef menn standa sig ekki í því að skila ársreikningum og standa skil á upplýsingum til hins opinbera færu eftir ákveðinn tíma þessar takmörkuðu ábyrgðir að færast yfir. Þetta er klárlega mál sem liggur þungt á mjög mörgum og sá aðili sem getur fundið lausn á þessu máli verður hetja í augum margra einyrkja á landinu.