jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
Frú forseti. Ég kem einungis hér til að halda örstutta ræðu. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það að mér fannst hún svara, eftir atvikum eins vel og skilmerkilega og hægt er, þeirri spurningu sem ég lagði fyrir hana og ég virði hana fyrir þann vilja. Þær upplýsingar sem hún lagði fyrir mig eftir lauslega skoðun, án þess að hún vildi koma með nákvæma niðurstöðu — mér fannst þær vera nokkuð nálægt því sem ég tel sjálfur. Ég þakka henni fyrir að koma þó með þessar upplýsingar og sömuleiðis að lýsa því yfir að hún sé þeirrar skoðunar að nefndin eigi að skoða mjög rækilega samspil þessara þriggja þátta með það fyrir augum að þeir sem búa á köldu svæðunum komi út með sem hagstæðustum hætti. Það er líka mitt markmið í þessu.
Ég ítreka svo það sem ég hef áður sagt að ég tel að það verði náttúrlega þarfast fyrir alla, ekki síst þá tekjulægstu í landinu, ég tala nú ekki um bændur, og mundi bæta friðinn og samspilið innan ríkisstjórnarinnar, að menn bara hættu þessari vitleysu með hækkun neðra þrepsins. Það yrði miklu friðvænlegra í landinu og miklu þægilegra að lifa fyrir hæstv. ráðherra í því sambýli sem ríkisstjórnin er. Þá hættu menn að minnsta kosti að standa hér annan hvern dag og æpa sig hása sín á milli, stjórnarflokkarnir tveir, þar sem bullandi ágreiningur ríkir um þetta mál.
Ég ítreka aftur þakkir mínar til hæstv. ráðherra fyrir að hafa gert það sem hún getur til að svara flókinni spurningu, hún gerði það býsna vel.