144. löggjafarþing — 13. fundur,  25. sept. 2014.

hlutafélög o.fl.

12. mál
[14:35]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil rétt við lok þessarar umræðu þakka hana. Nú er málið á leið inn í nefnd og ég vil hvetja nefndina til þess að skoða þau ákvæði sem hv. þingmenn hafa hér rætt. Vil ég vísa sérstaklega til þess sem hv. þm. Vilhjálmur Bjarnason ræddi um varðandi endurskoðendur og að fastsetja fjölda hluta og verðgildi. Það er sjálfsagt að nefndin fari yfir það og skoði. Ég lýsi því að sjálfsögðu yfir að ég og starfsfólk ráðuneytisins erum tilbúin til þess að aðstoða við það eftir föngum.