144. löggjafarþing — 15. fundur,  7. okt. 2014.

vátryggingarsamningar.

120. mál
[14:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga. Markmiðið með frumvarpinu er að stuðla að því að viðskiptavinum vátryggingafélaga verði gert auðveldara að skipta um vátryggingafélag. Frumvarpið er til komið vegna athugunar Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, á aðkomu íslenska ríkisins að endurreisn vátryggingafélagsins Sjóvá–Almennar tryggingar hf. Í kjölfar þeirrar athugunar skuldbatt íslenska ríkið sig til að fara yfir ákvæði laga um vátryggingarsamninga um uppsagnir vátryggingarsamninga í því skyni að stuðla að aukinni samkeppni á vátryggingamarkaði. Skipaður var starfshópur sem fór yfir núverandi ákvæði vátryggingarsamningalaganna og sambærileg ákvæði í Noregi og Danmörku þar sem heimildir til uppsagnar vátryggingarsamninga eru víðtækari en hér á landi. Niðurstaða starfshópsins var sú að rétt væri að leggja til breytingu á lögum um vátryggingarsamninga svo skilvirkara væri fyrir viðskiptavini að segja upp vátryggingarsamningi.

Eins og lögin eru í dag geta vátryggingartakar ekki sagt upp vátryggingarsamningi nema við tilteknar aðstæður og það er ekki hægt að segja upp vátryggingarsamningi til að skipta um vátryggingafélag vegna þess til dæmis að betri kjör bjóðast. Verði frumvarpið að lögum verður stuðlað að auknum hreyfanleika viðskiptavina vátryggingafélaga.

Helstu breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu eru eftirfarandi:

Að vátryggingartaki geti sagt upp vátryggingarsamningi eingöngu í því skyni að flytja vátryggingu til annars félags.

Að uppsögnin skuli vera með 30 daga fyrirvara og miðast við næstu mánaðamót þar á eftir.

Að taka megi tillit til áhættusveiflna við uppgjör þegar tekið er tillit til þeirra við ákvörðun iðgjalds.

Að vátryggingafélag megi ekki taka gjald vegna kostnaðar þess við að vátryggingu er sagt upp á samningstímabili.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.