144. löggjafarþing — 16. fundur,  8. okt. 2014.

þjóðarvá vegna lífsstílstengdra sjúkdóma barna og unglinga.

[16:15]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa mjög þörfu og áhugaverðu umræðu. Ég veit ekki hvort ég hef miklu við hana að bæta. Það hafa komið fram margir góðir punktar, þetta er svo margþætt.

Þetta snýst um að hafa möguleika á að hreyfa sig. Þar erum við að horfa á samgöngur og möguleikana á að hjóla. Mér skilst að sums staðar sé bannað að leggja hjólum við skóla sem er svolítið sérstakt. Ég vil koma inn á skólatöskuna sem ég nefndi hérna fyrr í dag. Við eigum að gera börnum kleift að ganga og þá verða að vera gangstéttar og hjólastígar fyrir börnin.

Varðandi íþróttir og hreyfingu þarf það líka að vera aðgengilegt fyrir alla. Mér finnst skrýtið að við skulum ekki vera komin lengra í að samþætta íþróttaiðkun og skólana þannig að það sé bara samfelldur skóladagur og æfingar inni í skóladeginum.

Þá finnst mér líka mikilvægt að það sé fjölbreytni í íþróttum. Sumar íþróttagreinar fá meiri athygli en aðrar. Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Svo hefur mér stundum fundist við leggja ansi mikla áherslu á keppnis- og afreksíþróttir þegar allir ættu í raun að geta fengið að æfa á sínum forsendum. Ég þekki dæmi um að krakkar hafa hætt að æfa ákveðnar íþróttagreinar vegna þess að pressan er of mikil, það eru of margar æfingar í viku.

Þetta snýst líka um mataræði og það hversu mikið aðgengið er að óhollustu. Það má spyrja af hverju við seljum óhollustu á opinberum stöðum eins og í sundlaugum og íþróttahúsum. Það er ekki einu sinni hægt að fara á pósthús öðruvísi en að sjá sælgætisstand við kassann. Þetta er ekki svona í öllum löndum. Það er ekkert sem stendur í vegi fyrir því að maður grípi súkkulaðistykki, þau eru einhvern veginn úti um allt.

Þá vil ég líka koma að merkingum á matvælum. Mér finnst þær ekki nógu skýrar því að sykurinn er víða. Hann leynist í matvörum og hann á ekki að leynast neins staðar.

Svo hef ég líka áhyggjur af því hvað mér finnst íþróttamenn og ýmsar fyrirmyndir oft tilbúin að leggja lag sitt við fyrirtæki eins og Coca Cola, Pepsi og fleiri sem auglýsa óhollustu.