144. löggjafarþing — 16. fundur,  8. okt. 2014.

þjóðarvá vegna lífsstílstengdra sjúkdóma barna og unglinga.

[16:17]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Maður hefur ekki langan tíma til að ræða málin hérna og kannski fékk ég bara tíma fyrir það neikvæða í síðustu ræðu minni. Það kemur merkilega oft fyrir í þingsal að ég sé fullkomlega sammála hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, sem ég hefði ekki trúað áður en ég settist á þing. Mér fannst ræða hans með afbrigðum góð. Hann hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði að það sem við ættum við að etja núna væru ofgnóttarsjúkdómar í stað skortssjúkdóma áður.

Ég minni á önnur vandamál sem hafa verið mjög hvimleið þegar kemur að heilsufari unglinga og vissulega fullorðins fólks, sem eru reykingar og fíkniefnaneysla, þar á meðal áfengisneysla — áfengi er fíkniefni. Það hefur náðst gríðarlegur árangur í baráttunni gegn neyslu unglinga á þessum efnum undanfarin 10–15 ár og af því er kannski eitthvað að læra þótt ég átti mig á að það vandamál sé mjög frábrugðið þessu. Fólk neytir vímuefna af allt öðrum ástæðum en þeir sem nota of mikinn sykur út í matinn eða hreyfa sig of lítið, en kannski höfum við lært verðmætar lexíur sem hægt er að nýta til að komast áfram í þessu tiltekna máli.

Sömuleiðis vek ég athygli á gríðarlega mikilli tölvuvæðingu upp á síðkastið. Víðtækt fyrirbæri eins og tölvur eru notaðar í eiginlega allt. Það eru alltaf fleiri og fleiri ástæður til að gera hlutina í tölvunni. Við búum því ekki bara við ákveðinn velmegunarvanda heldur líka vanda sem kemur í kjölfar þess að tæknin býður upp á að hlutirnir séu gerðir á meðan maður er kyrr. Ég nefni þetta enn og aftur til umhugsunar.

Að lokum tek ég aftur undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni — það er svo gaman þegar maður getur það.

Ég legg til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jöfnu opnir.