verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Það hefur komið fram í alþjóðlegum rannsóknum að aukið aðgengi að áfengi hafi aukið drykkju og meðal annars rannsóknir frá Bandaríkjunum, Kanada, Finnlandi og Svíþjóð sýna fram á það. Ef það er reyndin, sem ég ætla ekki að rengja, hef ég heyrt áhyggjur af því vegna þess að aukin áfengisneysla geti valdið álagi á heilbrigðiskerfið og þar með aukið kostnað samfélagsins vegna sjúkdóma er tengjast áfengisneyslu.
Mig langar bara að athuga það hjá hv. þm. Ögmundi Jónassyni hvort hann deili jafnframt þessum áhyggjum með mér vegna þessa frumvarps.