144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

breyting á reglugerð um línuívilnun.

[10:35]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. sjávarútvegsráðherra er um nýlega breytingu á reglugerð sem hæstv. ráðherra gerði varðandi línuívilnun. Til að gera langa sögu stutta er það í fyrsta skipti frá fiskveiðiárinu 2009/2010 sem ýsukvóti er skorinn niður í línuívilnun, úr 2.100 tonnum í 1.100 tonn, þ.e. um 1.000 tonn.

Á svona stuttum tíma sem við höfum er ekki hægt að fara yfir allt en aðeins um forsöguna. Þegar gerð var breyting á fiskveiðistjórnarlögum í vor var eftirfarandi texti settur í nefndarálit, með leyfi forseta:

„Engin meiri háttar breyting er fyrirhuguð um nýtingu á svonefndum pottum á komandi fiskveiðiári, en stefnt er að því að áætlun um nýtingu þeirra til lengri tíma verði fyrst lögð fram á löggjafarþingi 2014–2015.“

Þetta var álit allra nefndarmanna í atvinnuveganefnd þó að nokkrir hafi verið með fyrirvara við nefndarálitið. Ég segi fyrir mitt leyti að þetta heiðursmannasamkomulag var grundvallarforsenda mín og míns þingflokks fyrir stuðningi við þessa breytingu, en ráðherra ætlaðist til í byrjun að hann fengi pottana til eigin ráðstöfunar. Það var stoppað af þinginu. Þingsályktunin átti að koma í staðinn en við vissum að við mundum ekki ná því á nokkrum dögum og nýtt fiskveiðiár byrjar 1. september. Þess vegna var þetta heiðursmannasamkomulag gert og sett í nefndarálit og ég minni á það, virðulegi forseti, að nefndarálit er lögskýringartexti. Þess vegna kemur mjög á óvart sú breyting á reglugerð sem er að kvisast út núna og ég gerði að umtalsefni í upphafi.

Það ríkir uppgjafartónn nú hjá fjölda útgerða og í fjölmörgum útgerðarplássum um vestan-, norðan- og austanvert landið, útgerða sem treysta sér ekki lengur til að leigja úr stóra kerfinu. Á síðasta fiskveiðiári voru leigð tæp 5 þús. tonn af ýsu úr stóra kerfinu og greiddir fyrir það 2 milljarðar kr.

Þessir aðilar veiddu 12 þús. tonn (Forseti hringir.) af heildarýsukvótanum, þ.e. 35%. (Forseti hringir.) Spurning mín til hæstv. ráðherra er einfaldlega þessi: Hvers vegna er þetta heiðursmannasamkomulag svikið?