ummæli ráðherra í Kastljósi.
Virðulegi forseti. Ég þreif nú líka spena og smalaði kúm á svipuðu svæði og hæstv. ráðherra nefndi.
En ég vil ítreka varðandi fyrri spurninguna hvort það sé sérstaklega í verkahring ráðherra að segja til um starfsemi fjölmiðla með rökvillum og óljósum ásökunum. Það er að sjálfsögðu ekkert að því að svara á málefnalegan hátt og skjóta til baka með réttmætum spurningum. En þegar skotið er til baka með „þú líka“- ásökun þá er það kannski ekki alveg rétt vinnulag.
Ég vil ítreka þá spurningu hvort það sé almennt séð í verkahring hæstv. ráðherra að gagnrýna fjölmiðla með ásökunum og rökvillum.