144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

framhald umræðu um frumvarp um verslun með áfengi.

[11:55]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að bregðast eins við og hann gerir, að koma skilaboðum til hæstv. heilbrigðisráðherra og lýsa því yfir að hann telji mikilvægt að ráðherrann verði við umræðuna, a.m.k. að hluta til. Við mundum að sjálfsögðu sætta okkur við það. Þá skil ég það svo að þessari umræðu verði ekki lokið án þess að hæstv. heilbrigðisráðherra verði að einhverju leyti, að hluta til, við umræðuna. Ég þakka fyrir það.