144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[13:55]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta ágæta andsvar og þessa fínu spurningu.

Það er kafli í greinargerðinni á bls. 12 sem heitir „Aukið fjármagn í forvarnir og fræðslu“. Þar er lagt til að í stað þess að 1% áfengisgjalds renni í lýðheilsusjóð verði það 5% sem segir okkur að okkar helstu sérfræðingar sem vinna á þessu sviði fái þar með aukið fjármagn til að sinna þeim góðu störfum sem þar fara fram. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Ég er ekki sérfræðingur í þessari fræðslu. Ég kann hins vegar ýmsar reynslusögur og þekki hvernig þetta hefur verið í því umhverfi sem maður hefur alist upp í, en við eigum mjög góða sérfræðinga sem ég treysti til þess að gera góða hluti. Aukið fjármagn gerir það einfaldlega að verkum að það er hægt að setja aukinn slagkraft í þau mál.