144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[14:23]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni að hún teldi fyrirkomulagið ágætt eins og það væri. Mig langar að benda á að árið 1987, tveimur árum áður en bjórinn var lögleiddur, voru 13 áfengisbúðir á Íslandi, árið 2002 voru þær orðnar 41 og núna árið 2014 eru þær 48. Árið 1997 svöruðu 63% 10. bekkinga þeirri spurningu hvort þeir hefðu drukkið um ævina, játandi. Árið 2013 er sú tala komin niður í 16%.

Því langaði mig að spyrja hv. þingmann: Mundi hv. þingmaður snúa aftur til ársins 1987 hvað varðar stefnu í þessum málum? Ef ekki, hvers vegna ekki?