verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbjarti Hannessyni fyrir seinna andsvar, spurningar og vangaveltur. Góður hagfræðingur sagði nú, sem ritaði hér fyrsta hagfræðiritið, að það væri ekki fyrir góðmennsku bakarans, slátrarans eða víngerðarmannsins sem við hefðum ofan í okkur og á, heldur vegna þess að þeir geta grætt á því. Á því byggir verslun.
Nei, það er hárrétt hjá hv. þingmanni að við getum ekki tryggt það ákvæði á hvaða verði verslunin muni selja þessa vöru eða aðra. Við verðum bara að horfa í eigin barm á því sviði og efla samkeppnisumhverfi verslunar. Ég held að það sé verkefnið og það er á okkar ábyrgð ekki síður en verslunarinnar í þeim efnum óháð því hvaða vöru við erum að tala um. Ég er til í að taka þá umræðu hvenær sem er.