144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[15:01]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafney Magnúsdóttur seinna andsvar hvað varðar auglýsingarnar.

Mér fannst hv. þingmaður koma bara mjög vel inn á það að auglýsingar eru ekki það sem við endilega sjáum á skilti eða í miðlum. Þær eru einmitt líka jafnframt kynningin sem fer fram til að mynda í vínbúðunum (Gripið fram í.) um hvaða vín hentar með mat o.s.frv. Þetta er bara sölumennska. (LRM: Verða þær leyfðar í þessu?) Þær eru leyfðar í dag. Slík kynning er leyfð í dag. Jú, þú kemur inn í vínbúð og færð kynningu á hvaða vín henti. Þetta er auglýsingamennska. Þetta er sölumennska. Hv. þingmaður dregur það nefnilega mjög vel fram að þetta er flóknara en svo að segja að við gætum bara bannað sjónvarpsauglýsingar eða auglýsingar í miðlum, enda er farið á bak við það og það er tvískinnungur (Gripið fram í.) í þessu efni alla leið.

Mér fannst hv. þingmaður koma mjög vel inn á þetta svið.