144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[15:04]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur fyrir hennar spurningar. Það er þetta með auglýsingar og sölumennsku. Við eigum ekki endilega að tala, ég er sammála því, á þann veg að öll auglýsingamennska sé neikvæð, það er alls ekki svo. Fræðin kenna okkur að auglýsingar eru annað og meira. Ráðgjöf getur verið auglýsing. Upplýsingar allar sem við veitum geta verið auglýsingar. Auglýsingar eru annað og meira. Í fræðunum er talað um söluráða eða eftirspurnarráða eftir því hvernig við nálgumst þetta viðfangsefni. Við höfum bara eina mínútu til að fara í slíkar vangaveltur. Ég tel þjóðhagslegt hagræði í því að spara spor og kílómetra og olíueyðslu í aðgengi að verslun.