verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni að hann greiddi atkvæði gegn því að bjórinn yrði lögleiddur hér á landi. Það kom líka fram í ræðu þingmannsins að hann hefði áttað sig á því á þeim tíma að það væri tímaspursmál hvenær bjórinn yrði lögleiddur og spurningin aðeins hvernig umgjörðin yrði.
Það gildir akkúrat það sama hér. Það er aðeins tímaspursmál hvenær þessu ástandi varðandi sölu áfengis í landinu verður breytt. Spurningin er: Hvernig ætlum við að hafa umgjörðina? Við þurfum að átta okkur á þessu og reyna að nálgast það, a.m.k. koma fram með einhverjar hugmyndir um hvernig við sjáum það fyrir okkur þannig að nefndir þingsins sem fá þetta mál til umfjöllunar nái að fara sem víðast yfir málið og fá fram sem flest sjónarmið.