verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég ætla að gerast sá spámaður hér að spá því að takist okkur að hrinda þessari atlögu að núverandi fyrirkomulagi og núverandi stefnu í áfengismálum muni hún verða við lýði um langa framtíð, því að ég held nefnilega að þau sjónarmið séu að sækja á. Mönnum eru að verða ljós betur þau alvarlegu vandamál sem við er að stríða á lýðheilsusviðinu og það er fleira en þetta, eins og offita og annað í þeim dúr.
Hefði mönnum þótt það trúlegt fyrir 25 árum að nú væri komin í gang alvöruumræða um það að banna tóbak eins og það leggur sig, reyktóbak? Það er þannig í dag eftir þróun sem hefur verið á fullri ferð í þá átt að ýta því út, út úr húsnæði, og draga úr neyslunni með öllum tiltækum ráðum, af því að mönnum er skaðsemin ljós og við sjáum hvað samfélagið verður miklu betra á allan hátt ef við getum a.m.k. lágmarkað skaðann sem þetta veldur. Ég trúi því að stjórnmálamenn framtíðarinnar á Íslandi verði svo kjarkmiklir að þeir láti velferð og lýðheilsu vera í öndvegi og ýti verslunarkreddunum til hliðar.