144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[16:00]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni Helga Hrafni fyrir afskaplega fína ræðu. Það er aldrei leiðinlegt að hlusta á hann í ræðustól, hann er svo ákveðinn og rökfastur og þar fram eftir götunum.

Hann segir í ræðu sinni að áfengi sé dóp. Það er bara þannig, þetta er bara dóp alveg á nákvæmlega sama hátt og kannabis, kókaín og amfetamín og hvað sem það heitir, allt þetta jukk.

Fæ ég tvær mínútur, herra forseti?

(Forseti (SJS): Já, í fyrra sinn.)

Já, í fyrra sinn, já. Hvað fyndist þingmanninum um að við mundum selja kannabis bara í búðum líka? David Nutt sagði, ég veit að hv. þingmaður var á þeim fyrirlestri, að rannsóknir í Bretlandi sýndu að það væri mun minna um dauðsföll af völdum eiturlyfja svonefndra eins og e-taflna, kannabis og ópíumtengdra efna en nokkurn tímann áfengis. Ef ég tók rétt eftir kom fram á glærunum hans að 22 þús. manns hefðu látist af völdum áfengisneyslu í Bretlandi á síðasta ári, 80 þús. manns af völdum tóbaksreykinga. En það var varla mælanlegt af þeim sem dóu vegna e-taflna. Það fer samt allt af hjörunum ef talað er um þær. Getum við ekki bara alveg eins farið að selja þær eins og að selja áfengi, gefa þetta bara allt frjálst, hafa ópíumsjoppur á öðru hverju horni og allir geta bara verið í djollí fíling við að reykja eða drekka brennivín? Getum við ekki alveg eins gert það eins og þetta?

Þingmaðurinn er mjög harður á því að þetta sé bara dóp. Og þetta er það. Það er ekkert efni í heiminum sem drepur fleiri árlega en áfengi, ekki einu sinni styrjaldir eða sjúkdómar. Hvað finnst honum um það?