144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[16:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég tel að frelsisaukning ein og sér muni ekki þýða minni unglingadrykkju svo að því sé svarað strax. Mig minnir að ég hafi farið með þetta í ræðunni áðan.

Það er rétt, sem hv. þingmaður segir, að reglur fylgdu þeirri aðferðafræði sem var beitt til að minnka unglingadrykkju enda lít ég á það sem eitt af höfuðmarkmiðum í baráttunni við neikvæðar afleiðingar af áfengisdrykkju. Ef áfengisdrykkja veldur ekki jafnmiklum vandræðum og ella þá er meiri áfengisneysla í sjálfu sér ekki vandamál. En það sem ákvarðar fyrst og fremst hversu miklum vandamálum áfengisneysla veldur er hvenær fólk byrjar að drekka. Það er þess vegna sem ég legg höfuðáherslu á unglingadrykkjuna.

Til að svara hv. þingmanni þá er ekki lagt til að slakað sé á neinum úrræðum sem hefur verið beitt gegn unglingadrykkju. Þvert á móti er imprað á því að auka eigi forvarnir og fræðslu. Ég tók ekki eftir því, þegar ég las frumvarpið og greinargerð, að þar væri fjallað um þessar reglur enda tilheyrir það væntanlega skólayfirvöldum að mestu leyti, en ég er fullkomlega hlynntur þeim reglum. Mér finnst það fínt að þær reglur séu til staðar, en það eru reglur sem eiga við ungu kynslóðina.

Það er þess vegna sem ég hef svo litla trú á því að breytingar á reglum fyrir fullorðna fólkið breyti einhverju um unglinganeyslu. Það er þess vegna sem ég tel ekki að þetta frumvarp muni auka unglinganeyslu vegna þess að aðrar reglur gilda um unglinga á öðrum vettvangi í þokkabót. Það er það sem ég vil meina að skipti mestu máli, það er unglinganeyslan, vegna þess að hún afmarkar síðan hversu miklum vandamálum, hvaða neysla sem á sér stað, neysla veldur. Ég vona að þetta svari spurningunni.