verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Það er athyglisvert að hv. þingmaður segir að ekki sé verið að slaka á. Hverju er verið að breyta? Það er engu verið að breyta. Það er bara verið að færa ágóðann frá ríkinu yfir á verslanir. Og treystir hv. þingmaður þá verslununum betur til að fylgja málum eftir en ríkisverslununum? Mig langar að heyra aðeins sjónarmiðin hvað það varðar.
Ég tek undir með hv. þingmanni að það skiptir gríðarlega miklu máli hvenær fólk byrjar að drekka og þess vegna var markið sett við 18 ára aldur. Á móti hefur það svo leitt til þess að það er eins og það sé löggilt að maður eigi að byrja að drekka 18 ára, sem er annað vandamál sem við erum að glíma við, þannig að við eigum aðeins að færa okkur ofar og markera líka þann valkost að drekka ekki áfengi.
Ég var á ráðstefnu um geðheilbrigðismál á Nauthóli í gær þar sem Arne Holte flutti athyglisverðan fyrirlestur og gaf út sjö atriði sem skiptu máli til að verjast geðvandamálum. Þar nefnir hann það magn áfengis sem þjóðin neytir sem einn af áhættufaktorunum; meira magn, fleiri sjúkdómar.
Hvað segir hv. þingmaður um þetta? (Forseti hringir.) Þá erum við líka að tala um þetta almennt eins og umræðan er til dæmis hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.