verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ég er með spurningu eða athugasemd. Spurningin er kannski hvernig hv. þingmaður bregst við athugasemdinni. Hún er sú að þegar maður spyr hvers vegna hitt eða þetta þarf maður að spyrja sig hvar sönnunarbyrðin hvíli. Hv. þingmaður spyr: Hvers vegna ætti þetta að fara í búðirnar? Ég mundi spyrja: Hvers vegna á þetta að vera hjá ríkinu? Og ég veit ekki um nein góð rök þess eðlis. Mér finnst frekar að það eigi ekki að vera ríkisafskipti nema skýrar ástæður séu fyrir því, og oft er það þannig, mjög oft. Vissulega hef ég ekkert á móti regluverki um hættulegar vörur á borð við áfengi, enda er ekki verið að mæla með því hér að þetta verði gefið fullkomlega frjálst og að það muni ríkja einhvers konar áfengisanarkí eða stjórnleysi.
Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmanni finnist ekki að sönnunarbyrðin ætti að hvíla á þeim sem vilja hafa sérstakt kerfi utan við fyrirbærið frekar en á þeim sem vilja það ekki.