verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Við skulum segja að við höfum eitthvert ástand í dag og við erum að tala um breytingu á því. Við erum að leggja fram mál sem er að sækja fram, á að vera til bóta ekki satt? Þess vegna spyr maður: Hver eru rökin fyrir að svo sé? Í greinargerðinni og öllu því sem er í þessu frumvarpi er meira og minna verið að reyna að búa til ástæður fyrir því að hagstætt og skynsamlegt sé að gera þetta. Þess vegna gagnrýni ég það og fer yfir það.
Ég get líka snúið þessu við og sagt: Ástæðan fyrir því að ég er á móti því að gera þetta bara á verslunar- og viðskiptalegum sjónarmiðum er hugmyndin um ágenga sölu og hagnað af vöru sem í eðli sínu er þess eðlis að við eigum að reyna að stemma stigu við notkun á henni, að lágmarka notkun á henni, skaðsemi vörunnar hefur komið ítrekað fram. Það er hlutverk okkar. Allur heimurinn er að glíma við það. En það er alveg hárrétt að við verðum að velja leiðir til þess og ég er að segja að ég er ósáttur við þessa leið, og færi fyrir því mín rök.
Í öðru lagi finnst mér þetta erfitt vegna þeirrar miklu samstöðu sem náðist um að eyða unglingadrykkju eða minnka hana og það er ekki búið að gera það varanlega. Það verður að halda því áfram á hverju einasta ári og heimurinn hefur að sumu leyti náð að breyta þessu. Hvaða skilaboð erum við að gefa með þessu frumvarpi? Hvaða skilaboð erum við að fara með inn í matvörubúðirnar?
Ég nefndi sælgætisrekkana og það að sumir hafa verið með hugmyndir um að banna þá, en svo komu allt í einu reglur um að þeir mættu ekki vera þannig að allir gætu káfað á sælgætinu og menn yrðu að ganga frá sælgætinu í umbúðum og annað slíkt. Kannski fara sælgætisrekkarnir út úr verslunum, kannski þarf það að fara út til að verja unga krakka og foreldra sem eru að reyna að setja reglur til verndar fyrir þeim freistingum sem ágeng sala og gróðavon veldur fyrir viðkomandi.
Ég er ekki talsmaður boða og banna. Ég er miklu hlynntari því að fara leiðbeinandi leið. En af hverju erum við að búa okkur til vandræði þar sem vel gengur eða hefur miðað í rétta átt?