144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[17:16]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér varð einmitt hugsað til þessa lands. Þegar ég heyrði rökfærslurnar fyrir því að þetta væri svo gott fyrir hinar dreifðu byggðir þá var mér einmitt hugsað til Grænlands, þó að ég hefði ekki kunnað við að nefna það. Það er ágætt að það komi hérna fram. Í brothættum byggðum þar sem er atvinnuleysi er ég alveg sannfærður um að aukinn aðgangur að brennivíni er ekki það sem vantar.

Því miður fann ég engar beinar kannanir á dreifðum byggðum hérna á Íslandi, hvort eitthvað væri til um það, en ég treysti bara samtökum eins og SÁÁ og mörgum öðrum sem vinna mikið starf í sjálfboðavinnu. Margir hafa haft samband við mig og mönnum finnst þetta grátlegt og trúa því ekki að þetta mál sé komið enn einu sinni inn í þingið.

Ég harma það hversu mikill tími fer í þetta. Ég trúi því ekki að þetta fari hér í gegn, að það sé meiri hluti fyrir þessu á Alþingi. Þar fyrir utan hefði ég haldið að við hefðum einhver önnur mál að ræða og einhver mikilvægari en aukið aðgengi að áfengi í verslunum.