144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

LungA-skólinn.

[13:48]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Þingflokkur Bjartrar framtíðar var svo lánsamur að fá að funda með forsprökkum LungA-skólans á Seyðisfirði í gær. Hátíðin LungA hefur verið haldin á hverju sumri síðastliðin fimmtán ár að mestu leyti fyrir tilstuðlan heimamanna sem ásamt kennurum og listamönnum hvaðanæva að koma þar upp listasmiðjum fyrir ungt fólk sem er gefið rými og hvatning til að skyggnast um í heimi listarinnar.

Reynslan af þeirri hátíð hefur leitt til þess að LungA-skólinn var settur á stofn og svipar honum á margan hátt til lýðháskólanna sem við þekkjum á Norðurlöndum þar sem ungt fólk dvelur til dæmis oft í eina önn eftir menntaskóla. Það nám, sú sambúð og það óhefðbundna kennsluform sem stuðst er við í þeim skólum er liður í því að hjálpa nemandanum að finna hvað hann langar að gera í lífinu, hvar áhugasvið hans liggur og hvað tekur við; hvaða háskólanám eigi til dæmis að velja, iðnnám eða listnám.

Á Íslandi glímum við við mikið brottfall úr menntaskóla eins og hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra veit manna best. Við erum líka að glíma við það að fólk byrjar í háskólanámi, finnur sig ekki í því fagi sem það valdi og hættir þá eða velur annað fag.

LungA-skólinn á Seyðisfirði er eins og lýðháskólarnir á Norðurlöndunum ekki bara frábær viðbót við núverandi skólakerfi heldur vænleg leið, og rannsóknir hafa sýnt það, til að hjálpa nemandanum að finna sína leið í lífinu, finna sitt áhugasvið og ástríðu.

Því vil ég spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvort ekki liggi fyrir að finna þessu nýja kennsluformi stað í menntakerfinu á Íslandi og í fjárlögum, því að ég trúi ekki öðru en hann sjái hagkvæmni í því. Mér þætti vænt um að fá að vita hvað hæstv. ráðherra sjái fyrir sér í þessum efnum í fjárlagagerðinni fyrir næsta ár, sem hann er vafalaust að undirbúa.