144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

úthlutun menningarstyrkja.

[14:34]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Vinnulag hæstv. forsætisráðherra við úthlutun styrkja á síðasta ári er ekki til þess fallið að auka traust á því hvernig fjármunum ríkisins er úthlutað og varið. Til staðar eru ágætir verkferlar og farvegir til að veita styrki úr ríkissjóði, t.d. ýmsir lögbundnir sjóðir, svo sem húsafriðunarsjóður og menningar- og vaxtarsamningar sveitarfélaga. Þá ferla hefði hæstv. forsætisráðherra átt að nýta sér betur.

Fjárlaganefnd Alþingis hafði mikið fyrir því á síðasta kjörtímabili að breyta úthlutun á óskiptum liðum fjárlagafrumvarpsins. Fyrirkomulagið hafði verið gagnrýnt harðlega í mörg ár, m.a. af Ríkisendurskoðun og fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem töldu að þarna væri lögð spillingargildra fyrir alþingismenn sem mætti ekki vera til staðar.

Orðrómur var um að þingmenn væru að hygla sínu fólki sérstaklega. Svipaður orðrómur varð um úthlutun hæstv. forsætisráðherra á síðasta ári.

Umbætur fjárlaganefndar, sem fylgja ætti eftir með aðhaldi og eftirliti, gengu út á gegnsæi til að auka traust á því hvernig fjármunum ríkisins er skipt, á þarfagreiningu og eftirlit, bætta stjórnsýslu, yfirsýn yfir einstaka málaflokka og faglega umsýslu. Útgangspunkturinn var að fjárlaganefnd og fagnefndir gerðu tillögur um einstaka fjárlagaliði en sjóðir og félagasamtök, menningarráð landshluta, vaxtarsamningar sveitarfélaga og ráðuneyti sjá um dreifingu til einstakra verka eftir ákveðnum viðmiðum.

Það voru ekki allir ánægðir með þetta umbótastarf fjárlaganefndar. Óánægðastir voru þeir sem höfðu greiðan aðgang að þingmönnum og fjárlaganefnd.

Vinnulag hæstv. forsætisráðherra virðist vera í anda þess sem hv. fjárlaganefnd hefur hafnað. Munurinn er þá sá að ráðuneyti heyra undir stjórnsýslulög en það gerir Alþingi ekki.