leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans þar sem hann kom víða við. Eitt af því sem hann vék að var að Framsóknarflokkurinn og sá sem hér stendur hefðu lofað miklu og aldrei nefnt það á nafn að draga bæri frá leiðréttingar sem þegar hefðu fengist á lánum. Það er bara ekki rétt og ég sé mig knúinn til að koma hingað upp og leiðrétta þetta. Meira að segja í svari hér í þinginu leiðrétti ég þetta áður og einmitt af sama tilefni, vegna misminnis þingmannsins eða rangra upplýsinga sem hann hefur viðað að sér.
Það kom margsinnis fram í aðdraganda kosninga að þessi aðgerð væri réttlætisaðgerð. Heimili höfðu fengið 110 milljarða lækkun á gengistryggðum lánum fyrir dómstólum, 46 milljarða lækkun vegna 110%-leiðarinnar. Hvað átti síðan að gera fyrir þá sem voru með stökkbreytt verðtryggð lán? Við töluðum fyrir því að leiðrétta ætti þau lán og draga úr þessu misrétti. Það sem við erum að fjalla um hér er lagfæring á grein í lögunum, útfærslunni, til að bregðast við því að upp gæti komið einhver ónákvæmni eða einhvers konar óvissa um það hvernig skuli farið með úrræðin. En viljinn hefur alltaf verið alveg skýr. Fyrri skuldalækkunaraðgerðir eiga að dragast frá áður en komið er til lækkunar, svo því sé haldið til haga.