144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

240. mál
[15:56]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er eðlilegt að maður gagnrýni Framsóknarflokkinn fyrir framgönguna í síðustu kosningum þegar efndirnar eru jafn litlar og raun ber vitni. 300 milljarðarnir eru orðnir að 72, 20% leiðréttingin er orðin að 5% og forsendubresturinn er orðinn að 250 þús. kr. á ári í fjögur ár að jafnaði fyrir þau heimili sem í hlut eiga. Það er langt frá því sem Framsóknarflokkurinn boðaði og það veit hv. þingmaður Frosti Sigurjónsson.

Það sem ég gagnrýni hvað harðast er framganga forustumanna Framsóknarflokksins, ekki síst formanns hans, varaformanns, formanns þingflokksins og fleiri sem fóru um og töluðu sérstaklega um 110% hópinn, hversu illa 110% hópurinn væri staddur, hversu lítil sú leiðrétting sem 110% hópurinn hefði fengið hefði dugað, hversu mikinn vanda 110% hópurinn væri nú kominn í og hversu brýnt það væri að taka á þeim vanda og ákveða síðan að loknum kosningum að taka þennan hóp sérstaklega og draga af honum þá aðstoð sem var svona léleg og ómerkileg. Þannig að þúsundir heimila með 110% skuldsetningu á heimili sínu munu ekki fá krónu úr þessari leiðréttingu en fólk sem á hundruð milljóna í hreinum eignum, þénar milljónir á mánuði, fær senda ávísun frá Frosta Sigurjónssyni. Ég get um það sagt að vont er þeirra ranglæti en verra þeirra réttlæti.