144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:20]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil fá svör frá þinginu, ekki frá ráðherra eða formanni hv. atvinnuveganefndar. Ég vil fá svör frá stjórnendum þessa þings við spurningunni hvers vegna þeir heimila þessa meðferð á málinu. Það er algjörlega ljóst af þeim köflum sem hæstv. ráðherra las hér áðan að umfjöllun umhverfisnefndar er mun víðtækari hvað varðar auðlindamálin en þegar atvinnuveganefnd fjallar um auðlindamál.

Þegar við fjöllum um rammaáætlun þarf að horfa heildstætt á verndina, orkunýtinguna, biðflokkinn, þetta er tekið frá A til Ö. Hér leggja menn hins vegar til að þetta sé tætt upp. Mér er algjörlega óskiljanlegt hvers vegna og mér er alveg sama um viðhorf ráðherra til þess. Hann getur haft alls konar pólitíska sýn og ráðherrar geta haft ýmsar óskir um að einhver annar sé betur til þess fallinn að fjalla um þeirra mál en hinn, en þingið á að hafa þetta á hreinu.(Forseti hringir.) Þingið sjálft á að hafa svona hluti á hreinu og (Forseti hringir.)ég tel að þarna sé farið gegn þingsköpum og hvernig kveðið er þar á um umfjöllunarefni nefnda.