144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:43]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég hlýt að þurfa að ítreka það sem kom fram í máli mínu áðan um fundarstjórn forseta: Ég tel að sú ráðstöfun að vísa þessu máli til hv. atvinnuveganefndar en ekki hv. umhverfis- og samgöngunefndar, sem hefur ekkert að gera með mannkosti einstakra nefndarmanna eða þekkingu þeirra í hv. atvinnuveganefnd, ég vil ítreka það, beri vott um að við séum að ganga gegn hugmyndafræði rammaáætlunar sem þess tækis og tóls sem henni er ætlað að vera, þ.e. hugmyndafræðinni um að við horfum á vernd og nýtingu í ákveðnu samhengi. Það að í þingsköpum standi vernd undir hv. umhverfisnefnd og nýting undir hv. atvinnuveganefnd breytir því ekki að við samþykktum hér lög um rammaáætlun þar sem við samþykktum í raun og féllumst á þann skilning að þetta fari saman og að við séum í vinnslu þessara mála að horfa á hlutina í samhengi.

Hv. þm. Katrín Júlíusdóttir sem talaði á undan mér gerði þessu ágæt skil. Ég vil nefna það sem hún talaði um af því að við erum að ræða um einn nýtingarkost, virkjunarkost, sem lagt er til að fari úr biðflokki yfir í nýtingu. Ég tel að við munum lenda í ákveðnum vanda ef við færum til að mynda kosti úr biðflokki yfir í vernd. Þá horfum við upp á málið eiga mörg heimili í þinginu. Við missum það að horfa á þetta út frá heildarsýninni og það hefur ekkert að gera með hvort hv. nefndarmenn í umhverfisnefnd eða atvinnuveganefnd séu allir ágætir. Það er ég alveg viss um og er þó í hvorugri nefndinni sem stendur.

Ég vil segja það út frá verndarflokknum og nota tækifærið í upphafi til að lýsa ákveðnum áhyggjum af stöðu mála þar. Það hefur komið fram í svari hæstv. ráðherra við fyrirspurn minni frá því fyrir ári að hægt gangi að ljúka friðlýsingu þeirra svæða sem eru í verndarflokki. Við þurfum ekki að vera geimvísindamenn til að átta okkur á því hvað þar stendur í vegi. Það eru væntanlega fjármunir, ekki síst, sem þar standa í vegi. Ég mun óska eftir svari við því í annarri fyrirspurn til hæstv. ráðherra, svo hann getur strax farið að undirbúa sig, hvernig staðan hefur breyst á því ári sem liðið er, því að við getum auðvitað ekki verið þekkt fyrir annað en að ljúka þeim málum sem við höfum ákveðið að ráðast í og okkur hafa verið falin sem alþingismönnum. Það er ekki síður mikilvægt að þessi mál gangi hratt og örugglega fyrir sig en umræða um nýtingarkosti.

Það er þetta með heildarsýnina sem mér finnst mikilvægt að við veltum fyrir okkur. Í lokaorðum greinargerðar verkefnisstjórnarinnar þar sem verið er að fjalla um þessi mál segir, með leyfi forseta:

„Verkefnisstjórn leggur áherslu á að það ferli sem skilgreint er í lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, byggir á tiltekinni aðferðafræði sem gengur út á röðun virkjunarkosta út frá tilteknum viðmiðum á ólíkum fagsviðum. Þeir virkjunarkostir sem koma best út úr þessari röðun m.t.t. orkunýtingar falla í orkunýtingarflokk, en þeir sem koma verst út falla í verndarflokk. Virkjunarkostir sem talið er að afla þurfi frekari upplýsinga um falla í biðflokk. Til að unnt sé að beita þessari aðferðafræði þarf nokkur fjöldi virkjunarkosta að vera til umfjöllunar samtímis og ekki er leyfilegt að framkvæma matið fyrr en nægjanleg gögn liggja fyrir varðandi þá virkjunarkosti sem til umfjöllunar eru. Aðferðafræðin gefur ekki möguleika á að framkvæma mat á stökum virkjunarkosti eða mjög fáum virkjunarkostum, enda er þá ekki hægt að framkvæma marktækan samanburð á milli kosta.“

Þetta er umhugsunarefni þegar við fjöllum um einn stakan kost. Það hefur raunar þegar komið fram í andsvörum sumra hv. þingmanna að við erum ekki að beita þeirri aðferðafræði sem lagt er upp með í rammaáætlun, þ.e. að bera saman ólíka kosti. Hér er einn kostur tekinn út úr og við fjöllum um stakan kost. Ég lít svo á að þessi lokaorð séu mildilega orðuð ábending um að við séum að hverfa frá hugmyndafræði rammaáætlunar sem snýst einmitt um þessa röðun og að við séum ekki að rífa hlutina út úr því samhengi sem þeir eru í.

Ég finn mig knúna til þess að reifa lítillega þau mál sem hafa kannski verið reifuð einna mest í kringum þennan virkjunarkost sérstaklega. Eins og kom fram í máli hv. þm. Katrínar Júlíusdóttur áðan er það staðreynd að við erum að tala um þennan staka virkjunarkost, við erum ekki að ræða heildaráhrif þessara þriggja kosta sem hafa verið nefndir í neðri hluta Þjórsár, sem tengjast í raun sömu hlutunum.

Þá er í fyrsta lagi það sem ég kom aðeins að í andsvari mínu áðan, að verkefnisstjórnin fékk þær umsagnir eftir síðasta ferli í kringum rammaáætlun að skoða sérstaklega laxagengd og áhrif á laxfiska. Það kemur fram í greinargerðinni að í þeim umsögnum sem hafa borist núna um þessa tillögu hafi óvissu um áhrif á laxinn í Þjórsá ekki verið eytt. Það hefur komið fram og þetta eru kannski veigamestu athugasemdirnar sem koma hér fram. Bent er á að ekki sé búið að skoða nákvæmlega hvaða áhrif það hefur á arðsemi virkjana í neðri hluta Þjórsár að ráðast í mótvægisaðgerðir þannig að framkvæmdirnar hafi ekki áhrif á laxagengd.

Við erum með talsverða umfjöllun frá fulltrúa umhverfis- og auðlindaráðuneytis í greinargerðinni þar sem bent er á að svona virkjanir geti haft gríðarleg áhrif, nema ráðist sé í miklar mótvægisaðgerðir, á laxagengd og líf laxfiska. Við vitum það að við erum ekki aðeins að ræða laxinn sem mikilvægan stofn í dýrafánu þessa lands, við erum ekki aðeins að ræða hann út frá dýraverndunarsjónarmiðum heldur er laxfiskurinn sem um er að ræða gríðarleg auðlind, það má hafa af honum gríðarlegar tekjur. Þess vegna spurði ég hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra hvort rætt hefði verið við veiðiréttarhafa, því að það kom fram í síðasta skipti þegar við áttum þessa umræðu að það hafði ekki verið gert. Þetta eru að sjálfsögðu upplýsingar sem þarf að fara mjög ítarlega yfir því að þarna eru ekki einungis umhverfisáhrifin á laxinn til skoðunar heldur líka þau efnahagslegu áhrif sem það getur haft ef þessar virkjanir ganga of nærri laxastofninum.

Annað atriði verð ég að nefna. Ég átta mig alveg á því að verkefnisstjórnin tók fyrst og fremst fyrir áhrifin á laxfiskinn af því að það var hennar hlutverk, hennar verkefni, en ég verð að gera athugasemd við að ekkert er fjallað um samfélagsleg áhrif af virkjunum. Það er rétt að verkefnisstjórninni var ekki falið að gera það. Það voru ekki þær athugasemdir sem ollu því að virkjanirnar voru færðar á sínum tíma yfir í biðflokk heldur voru það áhrifin á laxfiskinn.

Við viljum að okkur miði fram á við í þessu máli. Við viljum þessa heildarsýn sjálfbærrar þróunar þar sem við tökum með í reikninginn umhverfisleg áhrif, samfélagsleg áhrif og efnahagsleg áhrif, að við séum alltaf að meta þessar þrjár stoðir þegar við ræðum mál á borð við þetta. Því finnst mér vont, og þetta kemur fram í mjög mörgum umsögnum, að samfélagsleg áhrif séu ekki metin. Það finnst mér vera eitthvað fyrir hæstv. ráðherra að hugsa, hvernig við getum þróað það áfram. Það er vissulega rétt að oft er erfitt að meta samfélagsleg áhrif, það er líklega miklu erfiðara en að meta væntanleg efnahagsleg áhrif og umhverfisáhrif þar sem við höfum þróað með okkur ákveðna þekkingu.

Því hefur verið fleygt í mín eyru að við séum hreinlega ekki komin nógu langt í rannsóknum á samfélagslegum áhrifum af framkvæmdum á borð við þessar til að geta metið það af einhverju viti. Einhver orðaði það svo að best væri að meta þær eftir á, þá sæjum við þetta gerast, en það er auðvitað ekki ásættanlegt. Við hljótum að velta því fyrir okkur hvernig við getum stutt við slíkar rannsóknir þannig að við getum metið samfélagslegu áhrifin þegar við ætlum okkur að vinna samkvæmt hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Ýmis nágrannalönd okkar hafa unnið talsvert að þessum málum og ég held að við gætum lært ýmislegt af nágrönnum okkar annars staðar á Norðurlöndunum og í Evrópu. Ég held að mjög mikilvægt sé að verkefnisstjórnin taki þennan þátt sérstaklega fyrir í áframhaldandi vinnu sinni. Það er alveg rétt að þetta kemur fram í mörgum umsögnum um þennan kost.

Að lokum langar mig að nefna hjartans mál, tíminn líður alveg gríðarlega hratt hér. Það er að umhverfismatið er auðvitað frá árinu 2003. Ég hef lagt að nýju fram mál sem ég lagði fram á síðasta þingi um að rétt sé að við skoðum lagaumhverfið um það hvenær hægt er að krefjast endurskoðunar á umhverfismati, að fleiri aðilum sé hleypt að þeirri kröfugerð, og þá vitna ég til almennings í anda Árósasáttmálans sem við höfum fullgilt og snýst um aðkomu almennings að mikilvægum ákvörðunum sem varða umhverfismál.

Í því lagafrumvarpi sem ég hef lagt fram á þinginu núna er gerð tillaga um að umhverfisverndarsamtök, sem skilgreind eru á tiltekinn hátt eins og annars staðar í lagaumhverfinu, geti lagt fram kröfu um það að umhverfismat verði endurskoðað. Það er ekki hægt í núgildandi lagaumhverfi. Enn fremur legg ég til að sá tími sem nú er tíu ár verði styttur, hreinlega af því að við erum að horfa á það að umræða um náttúruvernd, svo dæmi sé tekið, hefur tekið stórkostlegum breytingum á undanförnum tíu árum, bara ef við tökum það sem hefur gerst undanfarin tíu ár. Það er ekkert óeðlilegt að ætla að ný þekking skapi líka forsendur fyrir því (Forseti hringir.) að hægt sé að endurskoða umhverfismat. Ég minni á þetta mál áður en ég vík hér (Forseti hringir.) úr pontu.