144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:41]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hafði hér áðan svo sem ekki áhyggjur af því að málið yrði í höndum hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem er formaður atvinnuveganefndar þegar verið var að fjalla um það í þinginu hvar þetta mál ætti heima. Ég hafði engar sérstakar áhyggjur af því enda snýst þetta ekki um persónur og leikendur þó að hv. þingmaður haldi það miðað við ræðu hans hér áðan. Menn þurfa aðeins að horfa út fyrir eigin nafla og átta sig á því að þetta snýst um allt annað. Þetta snýst um að reyna að skapa frið um þennan málaflokk.

Ekkert í svari hv. þingmanns við fyrirspurn minni núna í því samtali sem hér á sér stað gerði það að verkum að mér væri nokkuð rórra með það hvernig hv. þingmaður ætlar að fjalla um þetta mál. Ég skil hann ekki betur en svo að hann líti svo á að einhver friður sé rofinn út af því hvernig fráfarandi ríkisstjórn hanteraði málið og þar með geti hann sem formaður atvinnuveganefndar gert bara nákvæmlega það sem hann vill með þetta mál og metið hvort rök fagaðila séu rétt eða röng.

Það er bara ekki verkefnið.

Ég vil fá svar frá hv. þingmanni og ég vona að hann svari þá spurningunni sem hann gerði ekki áðan: Kemur til greina af hans hálfu að taka virkjunarkosti sem ekki er verið að fjalla um í þessari tillögu og meta hvort það verði nefndarinnar að færa þá til innan rammaáætlunar, færa þá á milli flokka? Er það það sem hann var að segja?