144. löggjafarþing — 18. fundur, 14. okt. 2014.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Frú forseti. Ég ætla ekki að takast frekar á við hv. þingmann um hvort okkar sé betra í að fylgja faglegri leiðsögn. Við höfum karpað um það oft áður og munum gera áfram. Mér þykir leitt að hann hafi upplifað yfirlæti af minni hálfu. Ég skal reyna að tileinka mér það lítillæti og þá auðmýkt sem einkennir málflutning hans að jafnaði. [Hlátur í þingsal.]