144. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[19:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur beðið með yfirlýsingar af sinni hálfu á meðan fyrir lá mælendaskrá varðandi hvar menn óskuðu eftir að ræða fundarstjórn forseta. Forseti var sömuleiðis á forsetastóli við fyrri hluta þessarar umræðu og heyrði ítrekaðar óskir þá um nærveru hæstv. heilbrigðisráðherra, sem nú hafa verið endurteknar, en ég þarf ekki að endurtaka það sem ég sagði áður á þessum fundi, að þeim skilaboðum verður komið skýrt til heilbrigðisráðherra að nærveru hans sé óskað við þessa umræðu. Vonandi tekst þá að skipuleggja hana þannig að hann geti verið viðstaddur þegar henni verður fram haldið.

Varðandi lengd funda í kvöld hafði forseti hugsað sér að hleypa a.m.k. einum ræðumanni að í viðbót, þ.e. ef sá ræðumaður gerir ekki athugasemdir við að tala nú að heilbrigðisráðherra fjarverandi.