144. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[19:31]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir innlegg hans í umræðuna.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann sé á móti frumvarpinu af því að hann er á móti því verslunarfyrirkomulagi sem er í landinu.

Ef ég skildi hann rétt eru tvær nauðsynjavörur í landinu sem þurfa að njóta sama verðs um allt land, þurfi að búa við ríkisdreifikerfi, það er áfengi og mjólk. Þær vörutegundir eru tryggðar með sama verði um allt land og eru með sama dreifikerfi. Er hann kannski það mikið á móti núverandi verslunarkerfi að hann vilji að ríkið taki upp það kerfi fyrir Cheerios, hafragraut og aðrar nauðsynjavörur? Er hann tilbúinn að leggja jafnmikið á sig til að tryggja sama vöruúrval í öllum verslunum landsins, því hann hefur miklar áhyggjur af vöruúrvali áfengis í litlum bæjarfélögum? En mörg af þessum bæjarfélögum hafa þurft að berjast fyrir verslun, almennri verslun. Hvernig ætlar hv. þingmaður að tryggja þeim vöruúrval, sama dreifikostnaðinn og sama verð á öllum nauðsynjavörum eins og hann telur mjólk og áfengi vera?